Almenna persónuverndarreglugerðin
(A) Þessi tilkynning
Samantekt - þessi tilkynning
Þessi tilkynning er gefin út af Husqvarna AB (útg.) sem gefur hana út fyrir sína eigin hönd, dótturfyrirtækja sinna og samstarfsaðila (saman, „Husqvarna Group“, „við“, „okkur“ og „okkar“) og er ætluð einstaklingum utan okkar fyrirtækis sem við höfum samskipti við, þar á meðal viðskiptavinum, gestum á vefsvæði okkar, notendum forrita okkar, öðrum notendum vara okkar eða þjónustu, starfsumsækjendum og gestum sem koma á athafnasvæði okkar (saman, „þú“). Skilgreind hugtök sem notuð eru í þessari tilkynningu eru útskýrð í hluta (B) hér að neðan.
Finna má upplýsingar um viðeigandi ábyrgðaraðila samkvæmt þessari persónuverndartilkynningu í hluta (W) hér að neðan. Öll ákvæði sem eiga sérstaklega við um ákveðin lönd eru birt í viðauka 1. Finna má ákvæði sem eiga sérstaklega við um forrit, þjónustu eða vörur í viðauka 2.
Þessari tilkynningu kann að verða breytt eða hún uppfærð endrum og eins til að endurspegla breytingar á verklagi okkar með tilliti til úrvinnslu á persónuupplýsingum eða breytingar á gildandi lögum. Við hvetjum þig til að lesa þessa tilkynningu vandlega og til að skoða þessa síðu til að sjá hvers konar breytingar sem við kunnum að gera í samræmi við skilmála þessarar tilkynningar.
(B) Skilgreiningar
- „Forrit“ / „App“ þýðir allur hugbúnaður sem við bjóðum upp á (þar á meðal þegar við bjóðum upp á slíkan hugbúnað í gegnum verslanir eða markaðstorg þriðja aðila, eða eftir öðrum leiðum).
- „Viðeigandi lögsaga“ þýðir lögsaga sem hefur formlega verið útnefnd af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins eða persónuverndaryfirvöldum í Evrópu sem veitir viðeigandi vernd fyrir persónuupplýsingar.
- „Vefkaka“ þýðir lítil skrá sem er sett á tæki þitt þegar þú ferð inn á vefsvæði (þar á meðal svæðin okkar). Í þessari tilkynningu felur tilvísun í „vefköku“ í sér hliðstæða tækni, eins og vefmerki og hrein GIF-snið.
- „Ábyrgðaraðili“ þýðir sá aðili sem ákvarðar hvernig og hvenær unnið er með persónuupplýsingar. Í mörgum lögsögum ber ábyrgðaraðili frumábyrgð á því að farið sé eftir gildandi lögum um gagnavernd.
- „Persónuverndaryfirvöld“ þýðir óháð opinbert yfirvald sem er falið samkvæmt lögum að hafa yfirumsjón með fylgni við gildandi lög um gagnavernd.
- „EES“ stendur fyrir Evrópska efnahagssvæðið.
- „Aðdáendasíða“ hefur þá merkingu sem hugtakinu er gefið í hluta (V).
- „Persónuupplýsingar“ þýða upplýsingar um einstakling, sem hægt er að þekkja einstakling út frá, beint eða óbeint, einkum með tilliti til auðkenna eins og nafns, kennitölu, upplýsinga um staðsetningu, auðkenni á netinu eða fleiri þátta sem eiga sérstaklega við um líkamleg, lífeðlisfræðileg, erfðafræðileg, andleg, efnahagsleg, menningarleg eða samfélagsleg auðkenni þess einstaklings.
- „Úrvinnsla“, „unnið með“ eða „unnið“ stendur fyrir allt sem er gert með hvers konar persónuupplýsingar, hvort sem það er eftir sjálfvirkum leiðum, eins og öflun, skráning, skipulag, uppbygging, geymsla, aðlögun eða breyting, endurheimt, samráð, notkun, afhending með sendingu, dreifing eða á annan hátt að gera upplýsingarnar aðgengilegar, raða þeim eða sameina, takmarka þær, eyða þeim eða eyðileggja.
- „Úrvinnsluaðili“ þýðir sá einstaklingur eða lögaðili sem vinnur með persónuupplýsingar fyrir hönd ábyrgðaraðilans (annar en starfsmaður ábyrgðaraðilans).
- „Persónugreining“ þýðir hvers konar sjálfvirk úrvinnsla á persónuupplýsingum sem samanstendur af notkun persónuuuplýsinga í því skyni að meta ákveðna persónulega þætti sem tengjast lögaðila, einkum til að greina eða spá fyrir um þætti er varða frammistöðu lögaðilans í vinnu, efnahagslega stöðu, heilsu, persónulegan smekk, áhugamál, áreiðanleika, hegðun, staðsetningu eða hreyfingar.
- „Viðeigandi persónuupplýsingar“ þýðir persónuupplýsingar þar sem við erum ábyrgðaraðili.
- „Viðkvæmar persónuupplýsingar“ standa fyrir persónuupplýsingar um kynþátt eða þjóðaruppruna, stjórnmálaskoðanir, trúarlegar eða heimspekilegar skoðanir, aðild að stéttarfélagi, líkamlega eða andlega heilsu, kynlíf, öll raunveruleg eða meint brot gegn hegningarlögum eða refsingar, brot gegn stjórnvaldi eða refsingar, kennitala, upplýsingar um félagslega aðstoð eða allar aðrar upplýsingar sem teljast vera viðkvæmar samkvæmt gildandi lögum.
- „Stöðluð samningsákvæði“ þýðir sniðmát fyrir flutningsákvæði sem tekin hafa verið upp af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins eða persónuverndaryfirvaldi og samþykkt af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins eða viðeigandi persónuverndaryfirvaldi.
- „Svæði“ þýðir öll vefsvæði sem er stýrt eða viðhaldið af okkur eða fyrir okkar hönd.
C) Öflun persónuupplýsinga
Samantekt – öflun persónuupplýsinga
Við öflum eða komumst yfir persónuupplýsingar; þegar þessar upplýsingar eru afhentar okkur; í okkar sambandi við þig; þegar þú gerir persónuupplýsingar opinberar; þegar þú sækir, setur upp eða notar eitthvað af forritunum okkar; þegar þú ferð inn á vefsvæði okkar; þegar þú skráir þig á eitthvert af vefsvæðum okkar, forrit, vörur eða þjónustu; eða þegar þú hefur samskipti við efni frá þriðja aðila eða auglýsingar á vefsvæði eða í forriti
Öflun persónuupplýsinga: Við öflum eða komumst yfir persónuupplýsingar um þig frá eftirfarandi veitum:
- Gögn sem þú afhendir okkur: Við öflum persónuupplýsinga þegar þær upplýsingar eru afhentar okkur (t.d. þegar þú hefur samband við okkur í gegnum tölvupóst eða síma, eða eftir öðrum leiðum, þegar þú afhendir okkur nafnspjald þitt, þegar þú leggur inn starfsumsókn, þegar þú tekur þátt í keppni eða auglýsingaherferð, þegar þú fyllir út samskiptaform, þegar þú skrifar dóm eða meðmæli um vöru á vefsvæðum okkar eða í forritum okkar, eða þegar þú samþykkir að deila myndum og myndskeiðum af þér og t.d. grasflötinni þinni með okkur).
- Upplýsingar um samband: Við öflum eða komumst yfir persónuupplýsingar í daglegum sambandi okkar við þig (t.d. þegar við gerum þér tilboð eða veitum þér þjónustu, eða vinnuveitanda þínum, þegar þjónustuaðilar okkar vinna úr pöntunum í netverslunum og afhenda okkur í kjölfarið viðkomandi upplýsingar, þegar við fáum upplýsingar um greiðslur eða tilkynningar um afhendingar).
- Upplýsingar sem þú gerir opinberar: Við öflum eða komumst yfir persónuupplýsingar sem þú sannarlega velur að gera opinberar, þar á meðal í gegnum samfélagsmiðla (t.d. kunnum við að afla upplýsinga af prófíl(um) þínum á samfélagsmiðlum, ef þú birtir eitthvað opinberla um okkur).
- Upplýsingar í tengslum við forrit: Við öflum eða komumst yfir persónuupplýsingar þegar þú sækir eða notar eitthvað af forritum okkar, þar á meðal þegar þú notar forrit í tengslum við Automower® eða aðra slátturóbóta, aðrar vörur okkar eða þjónustu.
- Upplýsingar á vefsvæðum: Við öflum eða komumst yfir persónuupplýsingar þegar þú ferð inn á einhver svæði okkar eða notar aðra eiginleika eða tilföng sem eru í boði á eða í gegnum vefsvæði (tæknilegar tengingaupplýsingar, t.d. hvaða vefsíðu þú fórst inn á, IP-tölu þína, dagsetningu og tíma aðgangs, endanlegt tæki sem notað var, upplýsingar um grunnstillingu vafra).
- Skráningarupplýsingar og notkunargögn: Við öflum eða komumst yfir persónuupplýsingar þegar þú notar, eða skráir þig fyrir notkun á, einhverjum af vefsvæðum okkar, vörum eða þjónustu.
- Upplýsingar um efni og auglýsingar: Veljir þú að hafa samskipti við efni eða auglýsingar þriðja aðila á vefsvæði eða í forriti, tökum við á móti persónuupplýsingum um þig frá þeim þriðja aðila.
- Upplýsingar frá þriðja aðila: Við öflum eða komumst yfir persónuupplýsingar frá þriðju aðilum sem veita okkur þær (t.d. lánastofnunum, löggæsluaðilum, samfélagsmiðlaveitum; o.s.frv.).
- Rakningarupplýsingar: Við öflum mögulega eða komumst yfir persónuupplýsingar í gegnum rakningu vefsíðna og fréttabréfa.
(D) Stofnun persónuupplýsinga
Samantekt – Stofnun persónuupplýsinga
Við stofnum persónuupplýsingar um þig (t.d. skráningar yfir samskipti þín við okkur).
Við stofnum einnig persónuupplýsingar um þig undir ákveðnum kringumstæðum, eins og skráningar yfir samskipti þín við okkur, og upplýsingar um kaupsögu þína.
(E) Flokkar persónuupplýsinga sem við vinnum með
Samantekt – flokkar persónuupplýsinga sem við vinnum með
Við vinnum með: persónuupplýsingar þínar (t.d. nafn þitt); lýðfræðigögn (t.d. aldur þinn); samskiptaupplýsingar þínar (t.d. heimilisfang þitt); skrár yfir samþykki þín; kaupupplýsingar; greiðsluupplýsingar (t.d. hvert á að senda reikninga); upplýsingar um vefsvæði okkar og forrit (t.d. hvers konar tæki þú ert að nota); vöruupplýsingar; upplýsingar um vinnuveitanda þinn (þar sem það á við); upplýsingar um samskipti þín við efni okkar eða auglýsingar; og öll viðhorf eða skoðanir sem þú lætur í ljós við okkur.
Við vinnum mögulega með eftirfarandi flokka persónuupplýsinga um þig, að því gefnu að fyrir því sé lagalegur grundvöllur:
- Persónulegar upplýsingar: skírnarnafn/nöfn; kjörnafn; ljósmyndir, myndskeið og raddupptökur.
- Lýðfræðilegar upplýsingar: kyn; fæðingardagur / aldur; þjóðerni; ávarpsorð; titill; æskileg tungumál.
- Samskiptaupplýsingar: póstfang; afhendingarstaður; símanúmer; faxnúmer; netfang; upplýsingar um persónulega aðstoð, þar sem við á; upplýsingar um skilaboðaforrit; upplýsingar um netskilaboð og upplýsingar um samfélagsmiðla.
- Skráningar yfir samþykki: skrár yfir öll samþykki sem þú hefur veitt, ásamt dagsetningu og tíma, hvers konar samþykki var um að ræða og allar upplýsingar þar að lútandi (t.d. viðfangsefni samþykkisins).
- Kaupupplýsingar: skrár yfir kaup og verð; og nafn viðtakanda, heimilisfang, símanúmer og netfang.
- Greiðsluupplýsingar: reikningar; greiðsluskráningar; hvert á að senda reikninga; greiðslumáti, númer bankareiknings eða kreditkortanúmer; korthafi eða nafn reikningshafa; öryggisupplýsingar korts eða reiknings; kort ‘gildir frá’ dagsetning; gildistími korts; BACS-upplýsingar; SWIFT-upplýsingar; IBAN-upplýsingar; greiðsluupphæð; greiðsludagsetning og skráningar á ávísunum.
- Gögn sem tengjast vefsvæðum okkar og forritum: gerð tækis; stýrikerfi; tegund vafra; vafrastillingar; IP-tala; tungumálastillingar; dagsetningar og tímar tenginga við vefsvæði eða forrit; stillingar; staðsetningargögn og aðrar tæknilegar upplýsingar um samskipti (sumar af þeim kunna að vera persónuupplýsingar); notandanafn; aðgangsorð, öryggisinnskráningarupplýsingar; notkunargögn; uppsafnaðar tölfræðilegar upplýsingar.
- Vöruupplýsingar: þegar þú notar einhverjar af vörum okkar, t.d. slátturóbót, safnar varan eða kemst yfir persónuupplýsingar, þar á meðal staðsetningargögn.
- Upplýsingar um vinnuveitanda: þegar þú hefur samskipti við okkur sem starfsmaður þriðja aðila, nafn þitt, heimilisfang, símanúmer og netfang vinnuveitanda þíns, að því marki sem það á við.
- Upplýsingar um efni og auglýsingar: skráningar á samskiptum þínum við auglýsingar okkar og efni á netinu, skráningar á auglýsingum og efni sem birtist þér á síðum eða skjámyndum forrita, og öll samskipti sem þú kannt að hafa haft við slíkt efni eða auglýsingar (t.d. vok mús eða smellir með mús, öll form sem þú fyllir út að fullu eða að hluta til) og öll samskipti við snertiskjá.
- Skoðanir og viðhorf: allar skoðanir og viðhorf sem þú kýst að láta í ljós við okkur, eða opinberar færslur um okkur á samfélagsmiðlum.
(F) Viðkvæmar persónuupplýsingar
Samantekt – viðkvæmar persónuupplýsingar
Við leitumst ekki eftir að afla eða á annan hátt vinna með viðkvæmar persónuupplýsingar. Þegar við þurfum að vinna með viðkvæmar persónuupplýsingar af lögmætum ástæðum, gerum við það samkvæmt gildandi lögum.
Við leitumst ekki eftir að afla eða á annan hátt vinna með viðkvæmar persónuupplýsingar í okkar hefðbundna rekstri. Þegar það verður nauðsynlegt að vinna með viðkvæmar persónuupplýsingar þínar af einhverjum ástæðum, reiðum við okkur á einn af eftirfarandi lagalegum grunnum:
- Fylgni við gildandi lög: Við vinnum mögulega með viðkvæmar persónuupplýsingar þínar þegar sú úrvinnsla er nauðsynleg eða leyfð samkvæmt gildandi lögum (t.d. til að uppfylla skuldbindingar okkar um fjölbreytniskráningar);
- Stofnun, beiting eða vörn lagalegra réttinda: Við vinnum mögulega með viðkvæmar persónuupplýsingar þínar þegar sú úrvinnsla er nauðsynleg vegna stofnunar, beitingar eða varnar á lagalegum réttindum;
- Samþykki: Við vinnum mögulega með viðkvæmar persónuupplýsingar þínar þegar við höfum, í samræmi við gildandi lög, skýrt samþykki þitt fyrir því áður en úrvinnsla viðkvæmra persónuupplýsinga þinna fer fram (þessum lagalega grunni er aðeins beitt í tengslum við úrvinnslu sem er algjörlega sjálfboðin – honum er ekki beitt við úrvinnslu sem er nauðsynleg eða skyldubundin á nokkurn hátt); eða
- Sannarlega gerðar opinberar: Við öflum mögulega viðkvæmra persónuupplýsinga þinna þegar úrvinnsla á slíkum persónuupplýsingum tengist gögnum sem þú sem skráður aðili gerir sannarlega opinber, t.d. á aðdáendasíðum okkar á samfélagsmðlum.
Ef þú lætur okkur viðkvæmar persónuupplýsingar í té, verður þú að tryggja að það sé löglegt að þú afhendir okkur slík gögn, og þú verður að tryggja að fyrir hendi sé gildur lagalegur grunnur fyrir hendi er varðar úrvinnslu á slíkum viðkvæmum persónuupplýsingum.
(G) Tilgangur úrvinnslu og lagalegur grunnur fyrir úrvinnslu
Samantekt – Tilgangur úrvinnslu og lagalegur grunnur fyrir úrvinnslu
Við vinnum með persónuupplýsingar í eftirfarandi tilgangi: til að bjóða þér upp á vefsvæði okkar, forrit, vörur og þjónustu; í okkar rekstri; hafa samskipti við þig; leyfa tengingu vara okkar og þjónustu; viðhalda aðdáendasíðum á samfélagsmiðlum; stjórna upplýsingatæknikerfum okkar; fyrir heilsu og öryggi; fjármálastjórnun; framkvæmd kannana, tryggja öryggi athafnasvæða okkar og kerfa; framkvæma rannsóknir þegar þörf krefur; fylgni við gildandi lög; bæta vefsvæði okkar, forrit, vörur og þjónustu; koma í veg fyrir svik; og ráðningar og starfsumsóknir.
Tilgangur úrvinnslu okkar á persónuupplýsingum, háður gildandi lögum, og lagalegur grunnur fyrir því að við framkvæmum slíka úrvinnslu, er eftirfarandi:
| Úrvinnsluaðgerðir | Lagalegur grunnur fyrir úrvinnslu |
|---|---|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
(H) Afhending persónuupplýsinga
Samantekt – Afhending persónuupplýsinga
Við afhendum persónuupplýsingar: lagalegum yfirvöldum; utanaðkomandi ráðgjöfum okkar; utanaðkomandi þjónustuaðilum; úrvinnsluaðilum okkar; öllum aðilum sem þarf í tengslum við málaferli; og þeim aðilum sem þarf við rannsóknir, greiningu eða forvarnir gegn brotum gegn hegningarlögum; öllum kaupendum okkar; og öllum utanaðkomandi aðilum sem veita okkur auglýsingar, íbætur eða efni sem notað er á vefsvæðum okkar eða í forritum okkar.
Við afhendum persónuupplýsingar öðrum lögaðilum innan Husqvarna Group, í lögmætum viðskiptalegum tilgangi og við starfrækslu á vefsvæðum okkar, forritum, vörum eða þjónustu, í samræmi við gildandi lög. Enn fremur afhendum við persónuupplýsingar þínar:
- þér og, þar sem við á, tilnefndum fulltrúum þínum;
- lagalegum yfirvöldum, samkvæmt beiðni, eða í þeim tilgangi að tilkynna um raunveruleg eða meint brot gegn gildandi lögum eða reglugerðum;
- endurskoðendum, úttektaraðilum, lögmönnum og öðrum utanaðkomandi ráðgjöfum Husqvarna Group, háð bindandi samningsskyldum um trúnað;
- utanaðkomandi þjónustuaðilum sem starfa sem sérstakir ábyrgðaraðilar (eins og fyrirtækjum í greiðsluþjónustu, flutningsaðilum, tryggingafélögum o.s.frv.);
- utanaðkomandi úrvinnsluaðilum (eins og þjónustuaðilum í upplýsingatækni, o.s.frv.);
- öllum viðeigandi aðilum, löggæslustofnunum eða dómstólum, að því marki sem telst nauðsynlegt fyrir stofnsetningu, beitingu eða verndar á lagalegum réttindum;
- öllum viðeigandi aðilum í þeim tilgangi að koma í veg fyrir, rannsaka, greina eða höfða málsóknir vegna brota gegn hegningarlögum eða fullnustu refsinga;
- öllum viðeigandi utanaðkomandi kaupendum, ef til þess kemur að við seljum eða flytjum alla viðeigandi hluta viðskipta okkar eða eigna (þar á meðal við endurskipulagningu, slit eða gjaldþrot);
- samfélagsmiðlum eða hefðbundnum miðlarásum, eins og sjónvarps- eða útvarpsstöðvum ef til þess kemur að við notum efni frá þér í auglýsingum okkar; og
- öllum viðeigandi þriðju aðilum, þar sem vefsvæði okkar og forrit notast við auglýsingar, íbætur eða efni frá þriðju aðilum eða þegar þú kýst að tengja Husqvarna Group vörur eða þjónustu við vörur eða þjónustu frá þriðja aðila. Ef þú kýst að hafa samskipti við slíkar auglýsingar, íbætur, efni eða tengjast slíkum vörum/þjónustu, verður persónuupplýsingum þínum deilt með viðkomandi utanaðkomandi veituaðilum. Við mælum með því að þú skoðir persónuverndartilkynningu þess þriðja aðila áður en þú hefur samskipti við auglýsingar hans, íbætur, efni eða tengir Husqvarna Group vörur eða þjónustu við vörur eða þjónustu þriðja aðila.
Ef við fáum úrvinnsluaðila til að vinna með persónuupplýsingar þínar, mun úrvinnsluaðilinn vera háður bindandi samningsskyldum um að: (i) eingöngu vinna með persónuupplýsingarnar í samræmi við fyrirliggjandi skrifleg fyrirmæli okkar; og (ii) gera ráðstafanir til að vernda trúnað og öryggi persónuupplýsinganna; ásamt öllum viðbótarkröfum samkvæmt gildandi lögum.
(I) Persónugreining
Samantekt – persónugreining
Persónuupplýsingar eru ekki háðar sjálfvirkri ákvarðanatöku og persónugreiningu.
Við vinnum ekki með persónuupplýsingar fyrir sjálfvirka ákvarðanatöku og persónugreiningu, sem hefur í för með sér lagaleg áhrif er varða skráðan aðila eða hefur á sama hátt veruleg áhrif á hann eða hana.
(J) Flutningur á persónuupplýsingum á milli landa
Samantekt – flutningur á persónuupplýsingum á milli landa
Við flytjum persónuupplýsingar til viðtakenda í öðrum löndum. Þegar við flytjum persónuupplýsingar frá EES til viðtakanda utan EES sem er ekki innan viðeigandi lögsögu, gerum við það á grundvelli staðlaðra samningsákvæða eða bindandi fyrirtækjalaga.
Vegna þess hve alþjóðlegur rekstur okkar er, flytjum við persónuupplýsingar innan Husqvarna Group, og til þriðju aðila eins og kveðið er á um í hluta (H) hér að ofan, í tengslum við þann tilgang sem kveðið er á um í þessari tilkynningu. Af þessari ástæðu flytjum við persónuupplýsingar til annarra landa sem kunna að hafa önnur lög og kröfur um gagnavernd en þau sem gilda í því landi sem þú ert staðsett(ur).
Þegar við flytjum persónuupplýsingar þínar frá EES, Bretlandi eða Sviss til viðtakenda utan EES, Bretlands eða Sviss sem eru ekki innan viðeigandi lögsögu, gerum við það á grundvelli staðlaðra samningsákvæða. Þú átt rétt á að biðja um eintak af stöðluðum samningsákvæðum okkar og nota til þess samskiptaupplýsingarnar sem er að finna í hluta (W) hér að neðan. Þegar við notumst við úrvinnsluaðila sem hefur tekið upp bindandi fyrirtækjareglur flytjum við persónuupplýsingar þínar einnig mögulega á grundvelli bindandi fyrirtækjareglna.
Vinsamlegast athugaðu að þegar þú flýtur hvers konar persónuupplýsingar beint til aðila innan Husqvarna Group sem er utan EES, Bretlands eða Sviss, berum við ekki ábyrgð á þeim flutningi persónuupplýsinga þinna. Við munum engu að síður vinna með persónuupplýsingar þínar, frá þeim tímapunkti sem við tökum á móti þeim upplýsingum, í samræmi við ákvæðin í þessari tilkynningu.
(K) Gagnaöryggi
Samantekt – gagnaöryggi
Við útfærum viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar þínar. Vinsamlegast tryggðu að allar persónuupplýsingar sem þú sendir okkur séu sendar á öruggan hátt.
Við höfum útfært viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir sem hannaðar eru til að vernda persónuupplýsingar þínar gegn óviljandi eða ólöglegri eyðingu, tapi, breytingum, óleyfilegri afhendingu, óheimilum aðgangi og annarri ólöglegri eða óleyfilegri úrvinnslu, í samræmi við gildandi lög.
Þar sem internetið er opið kerfi, er sending upplýsinga um internetið ekki fyllilega örugg. Þrátt fyrir að við útfærum allar sanngjarnar ráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar þínar, getum við ekki ábyrgst öryggi upplýsinga þinna sem við sendum um internetið - allar slíkar sendingar eru á þína eigin áhættu og þú berð ábyrgð á að tryggja að allar persónuupplýsingar sem þú sendir okkur séu sendar á öruggan hátt.
(L) Áreiðanleiki upplýsinga
Samantekt – áreiðanleiki upplýsinga
Við gerum allar sanngjarnar ráðstafanir til að tryggja að persónuupplýsingar þínar séu áreiðanlegar og uppfærðar og að þeim sé eytt eða þær leiðréttar ef við verðum þess áskynja að þær eru óáreiðanlegar.
Við gerum allar sanngjarnar ráðstafanir til að tryggja að:
- persónuupplýsingar þínar sem við vinnum með séu áreiðanlegar og, þar sem þörf krefur, þeim sé haldið uppfærðum; og
- öllum persónuupplýsingum þínum sem við vinnum með sem eru óáreiðanlegar (að teknu tilliti til tilgangs þess að unnið er með þær) sé eytt eða þær leiðréttar tafarlaust.
Endrum og eins kunnum við að biðja þig um að staðfesta áreiðanleika persónuupplýsinga þinna.
(M) Gagnalágmörkun
Samantekt – gagnalágmörkun
Við gerum allar sanngjarnar ráðstafanir til að takmarka magn þeirra persónuupplýsinga sem við vinnum með við það sem nauðsynlegt er.
Við gerum allar sanngjarnar ráðstafanir til að tryggja að þær persónuupplýsingar sem við vinnum með takmarkist við persónuupplýsingar sem eru á rökréttan hátt nauðsynlegar í tengslum við þann tilgang sem kveðið er á um í þessari tilkynningu.
(N) Varðveisla upplýsinga
Samantekt - varðveisla upplýsinga
Við gerum allar sanngjarnar ráðstafanir til að tryggja að persónuupplýsingar þínar séu aðeins varðveittar eins lengi og þarf í tengslum við löglegan tilgang.
Við gerum allar sanngjarnar ráðstafanir til að aðeins sé unnið með persónuupplýsingar þínar í þann tíma sem þarf í þeim tilgangi sem kveðið er á um í þessari tilkynningu. Viðmiðin til að ákvarða hversu lengi við munum varðveita persónuupplýsingar þínar eru sem hér segir:
1. við munum aðeins varðveita persónuupplýsingar á auðkennanlegu formi:
- eins lengi og við viðhöldum sambandi við þig (t.d. þegar þú ert notandi þjónustu okkar, eða þú ert á löglegan hátt á póstlista okkar og hefur ekki sagt upp áskrift); eða
- eins lengi og persónuupplýsingar þínar eru nauðsynlegar í tengslum við þann löglega tilgang sem kveðið er á um í þessari tilkynningu, sem við höfum gildan lagalegan grunn fyrir (t.d. þar sem persónuupplýsingar þínar eru hluti af samningi á milli okkar og vinnuveitanda þíns, og við höfum lögmæta hagsmuni við úrvinnslu á þessum upplýsingum í þeim tilgangi að starfrækja fyrirtæki okkar og uppfylla skuldbindingar okkar samkvæmt þeim samningi; eða þegar okkur ber lagaleg skylda til að varðveita persónuupplýsingar þínar; eða þar til þú dregur samþykki þitt til baka og enginn annar lagalegur grunnur er til staðar; eða eins lengi og uppi eru lögbundnar skyldur um varðveislu),
ásamt:
2. tímalengd sem er:
- a. viðeigandi takmarkandi tími samkvæmt gildandi lögum (þ.e. það tímabil sem einstaklingur getur höfðað mál gegn okkur í tengslum við persónuupplýsingar þínar, eða sem persónuupplýsingar þínar eiga við um); og
- tveggja (2) mánaða tímabil til viðbótar eftir lok slíks viðkomandi takmarkandi tímabils (þannig að ef einstaklingur höfðar mál við lok takmarkandi tímabils, fáum við engu að síður sanngjarnan tíma til að skilgreina allar þær persónuupplýsingar sem eiga við um þá kröfu),
og:
3. til viðbótar: ef einhverjar viðeigandi lagalegar kröfur eru settar fram, höldum við áfram að vinna með persónuupplýsingar í slíkan viðbótartíma sem er nauðsynlegur í tengslum við þá kröfu; við kunnum einnig að halda áfram að vinna með persónuupplýsingar ef eyðing á slíkum upplýsingum gengur í berhögg við kröfurnar um að vernda hagsmuni viðkomandi einstaklinga; eða ef úrvinnslan er á annan hátt nauðsynleg í samræmi við 17. grein (3) almennu persónuverndarreglugerðarinnar eða sambærileg ákvæði í öðrum gildandi lögum um gagnavernd.
Á meðan á þeim tímabilum sem tilgreind eru í málsgreinum (2)(a) og (2)(b) hér að ofan stendur, munum við takmarka úrvinnslu á persónuupplýsingum þínum við geymslu á þessum upplýsingum, og viðhald öryggis þeirra, nema að því marki sem það þarf að endurskoða þessar upplýsingar í tengslum við lagalegar kröfur, eða skuldbindingar samkvæmt gildandi lögum.
Þegar tímabilunum í málsgreinum (1), (2) og (3) hér að ofan, hvert þeirra að því marki sem við á, lýkur, munum við annað hvort:
- endanlega eyða eða eyðileggja viðkomandi persónuupplýsingar; eða
- gera viðeigandi persónuupplýsingar nafnlausar.
(O) Lagaleg réttindi þín
Samantekt – Lagaleg réttindi þín
Með fyrirvara um gildandi lög, kannt þú mögulega að hafa eftirtalin réttindi er varða úrvinnslu viðkomandi persónuupplýsinga þinna:
Subject to applicable law, you may have the following rights regarding the Processing of your Relevant Personal Data:
- rétt til að afhenda okkur ekki persónuupplýsingar þínar (hins vegar skaltu athuga að þú munt ekki njóta allra kosta vefsvæða okkar, forrita, vara eða þjónustu, ef þú lætur okkur persónuupplýsingar þínar ekki í té - t.d. getum við mögulega ekki unnið úr beiðnum þínum án nauðsynlegra upplýsinga);
- rétt til að biðja um aðgang að, eða afrit af, viðeigandi persónuupplýsingum þínum, ásamt upplýsingum varðandi eðli, úrvinnslu og afhendingu á þessum viðeigandi persónuupplýsingum;
- rétt til að biðja um leiðréttingu á rangfærslum í viðeigandi persónuupplýsingum þínum;
- rétt til að biðja um, á lögmætum grundvelli:
- eyðinu á viðeigandi persónuupplýsingum þínum; eða
- takmörkun á úrvinnslu á viðeigandi persónuupplýsingum þínum;
- rétt til að láta flytja ákveðnar viðeigandi persónuupplýsingar til annars ábyrgðaraðila, á uppbyggðu, algengu og stafrænu sniði, að því marki sem mögulegt er;
þegar við vinnum með viðeigandi persónuupplýsingar þínar á grundvelli samþykkis þíns, rétt til að draga til baka það samþykki (hafandi í huga að ef það er gert hefur það ekki áhrif á lögmæti úrvinnslu sem farið hefur fram áður en tilkynning barst um að samþykki hefði verið dregið til baka, og kemur ekki í veg fyrir úrvinnslu á persónuupplýsingum þínum með tilliti til annars lagagrunns); og - rétt til að leggja fram kvörtun vegna úrvinnslu á viðeigandi persónuupplýsingum þínum til persónuverndaryfirvalda (einkum persónuverndaryfirvalda þess aðildarríkis ESB þar sem þú býrð, eða þar sem þú starfar, eða þar sem meint brot átti sér stað, hvort um sig ef við á, persónuverndaryfirvald í Bretlandi eða Sviss).
Með fyrirvara um gildandi lög, hefur þú mögulega eftirtalin viðbótarréttindi er varða úrvinnslu á viðeigandi persónuupplýsingum þínum:
- rétt til að mótmæla, á þeim grunni sem tengist þínum tilteknu kringumstæðum, úrvinnslu á viðeigandi persónuupplýsingum þínum af okkur eða fyrir okkar hönd; og
- rétt til að mótmæla úrvinnslu á viðeigandi persónuupplýsingum þínum af okkur eða fyrir okkar hönd í beinni markaðssetningu.
Þetta hefur ekki áhrif á lögbundin réttindi þín.
Viljir þú beita einum eða fleiri af þessum réttindum eða spyrja spurninga um þessi réttindi eða önnur ákvæði í þessari tilkynningu, eða um úrvinnslu á persónuupplýsingum, skaltu vinsamlegast fara á https://privacyportal.husqvarnagroup.com eða nota samskiptaupplýsingarnar sem finna má í hluta (W) hér að neðan. Vinsamlegast athugaðu að:
- í sumum tilvikum verður þú að leggja fram sönnun fyrir auðkenni þínu áður en við getum tekið tillit til þessara réttinda; og
- þegar beiðni þín kallar á að sýnt verði fram á frekari staðreyndir (t.d. að skera úr um hvort úrvinnslu sé ekki í samræmi við gildandi lög) munum við skoða beiðni þína innan sanngjarns tíma, áður en við ákveðum hvað skuli aðhafast.
(P) Vafrakökur og sambærileg tækni
Samantekt – vafrakökur og sambærileg tækni
Við vinnum með persónuupplýsingar með vafrakökur og sambærilegri tækni. Vinsamlegast skoðaðu vafrakökustefnu okkar á viðkomandi vefsvæði til að fá nánari upplýsingar.
Þegar þú heimsækir vefsvæði eða notar forrit munum við yfirleitt setja vafrakökur á tækið þitt eða lesa vafrakökur sem eru þegar á tæki þínu, ávallt háð samþykki þínu, þar sem þörf krefur, í samræmi við gildandi lög. Við notum vafrakökur til að skrá upplýsingar um tæki þitt, vafra og, í sumum tilvikum, kjörstillingar þínar og vafravenjur. Við vinnum með persónuupplýsingar með vafrakökum og sambærilegri tækni, í samræmi við vafrakökurstefnur okkar sem er að finna á viðkomandi vefsvæði.
(Q) Notkunarskilmálar
Samantekt – notkunarskilmálar
Notkunarskilmálar okkar stjórna allri notkun á vefsvæðum okkar og forritum.
Öll notkun á vefsvæðum okkar, forritum, vörum eða þjónustu er háð notkunarskilmálum okkar, sem finna má á eða í tengslum við viðkomandi vefsvæði, forrit, vöru eða þjónustu. Við mælum með að þú lesir notkunarskilmála okkar reglulega, til að athuga hvort einhverjar breytingar hafi verið gerðar.
(R) Bein markaðssetning
Samantekt – bein markaðssetning
Við vinnum með persónuupplýsingar til að hafa samband við þig með upplýsingar varðandi vefsvæði, forrit, vörur eða þjónustu sem þú hefur mögulega áhuga á. Þú getur sagt upp áskriftinni ókeypis hvenær sem er.
Við vinnum mögulega með persónuupplýsingar til að hafa samband við þig í gegnum tölvupóst, síma, bréfleiðis eða eftir öðrum samskiptaleiðum til að veita þér upplýsingar um vefsvæði, forrit, vörur eða þjónustu sem þú hefur mögulega áhuga á. Við höfum einnig mögulega samband við þig varðandi kannanir, leiki og væntanleg kynningarátök. Því til viðbótar sendum við þér mögulega upplýsingar sem þú kannt að hafa áhuga á.
Fréttabréf okkar inniheldur eltingardíla. Eltingardíll er ósýnileg grafík í HTML-tölvupóstum; tilgangur hans er að búa til skrá þegar tölvupósturinn er opnaður og til að skrá hvaða tenglar eru virkjaðir úr fréttabréfinu og greina þessi gögn í kjölfarið. Þetta gerir okkur kleift, með tölfræðilegu mati, að skera úr um árangur af herferðum í fréttabréfum okkar og að besta fréttabréfið, t.d. til að þú fáir upplýsingar og tilboð sem hæfa áhugamálum þínum betur.
Þú getur sagt upp áskrift að netfangalista okkar hvenær sem er með því að smella einfaldlega á tengilinn til að segja upp áskrift sem er að finna í öllum kynningarpóstum sem við sendum eða með því að senda tölvupóst á [email protected]. Eftir að þú hefur sagt upp áskriftinni munum við ekki senda þér fleiri kynningarpósta, en í sumum tilvikum munum við halda áfram að hafa samband við þig að því marki sem þarf í augnmiði ákveðinna vefsvæða, forrita, vara eða þjónustu sem þú hefur beðið um.
(S) Leikir
Samantekt – leikir
Ef þú tekur þátt í leik eða sambærilegri herferð, vinnum við mögulega með persónuupplýsingar þínar til að stjórna slíkum herferðum.
Endrum og eins hefur þú tækifæri til að taka þátt í leikjum eða sambærilegum kynningarherferðum, til dæmis í gegnum okkar vefsvæði. Til að stjórna þessum herferðum getur þurft að afla og geyma persónuupplýsingar þínar, eins og tilgreint er frekar á þátttökueyðublaði viðkomandi herferðar. Ef ekki er kveðið á um annað, verða allar persónuupplýsingar sem þú afhendir okkur vegna slíkra herferða eingöngu notaðar við meðhöndlun á herferðinni (þegar um er að ræða leiki til dæmis, til að ákveða sigurvegara og senda honum/þeim verðlaunin). Þegar herferðinni lýkur, verður upplýsingum um þá þátttakendur sem unnu ekki eytt tafarlaust og upplýsingum um sigurvegara verður eytt strax eftir að lögbundnum geymslutíma lýkur, nema, í hverju tilviki fyrir sig, þar sem annar lagagrunnur kallar á að við varðveitum upplýsingarnar en þá verður þátttakendum á skýran hátt gert grein fyrir því.
(T) Umsóknarferli á netinu
Samantekt – umsóknarferli á netinu
Við vinnum með persónuupplýsingar í tengslum við umsóknarferli á netinu.
Við bjóðum upp á starfsumsóknir á netinu. Gögnin sem þú sendir, þar á meðal allar skrár sem þú hleður upp, eru fluttar í gegnum örugga tengingu. Unnið verður með upplýsingar um umsókn þína í mannauðskerfum okkar. Aðgangur að ferilskrá þinni og öðrum persónuupplýsingum er takmarkaður við einstaklinga innan fyrirtækis okkar sem hafa viðeigandi heimildir til að skoða og vinna úr umsóknum um viðkomandi stöður. Allir aðilar munu meðhöndla umsóknargögn þín af ítrustu gætni og halda algjöran trúnað um efni þeirra.
Vettvangur til að leggja fram umsókn þína
Þegar þú sækir um í gegnum hugbúnað á netinu vinnum við með þær persónuupplýsingar sem þú afhendir í umsóknarferlinu. Það fer eftir þeirri aðferð sem þú velur en þessar upplýsingar koma mögulega beint frá þér þegar þú slærð upplýsingar inn handvirkt eða hleður upp skjali eins og ferilskrá þinni, eða frá þriðju aðilum þegar þú notar valkostinn „Sækja um með LinkedIn“. Þegar svo ber undir tökum við á móti ákveðnum gögnum frá LinkedIn-prófíl þínum í samræmi við friðhelgistillingar þínar, og við skoðum mögulega LinkedIn-prófílinn þinn sem hluta af ráðningarferlinu. Óháð þeirri aðferð sem þú velur, getur þú skoðað og breytt áður útfylltum upplýsingum áður en þú sendir inn umsókn þína, og þú getur aftengt LinkedIn-prófílinn þinn hvenær sem er með því að fylgja leiðbeiningum LinkedIn sem er að finna á https://www.linkedin.com/help/linkedin.
Sem hluti af ráðningarferlinu á netinu gefum við þér tækifæri til að búa til reikning á verkvangi okkar. Það er undir þér komið hvort þú vilt búa til reikning. Það er hægt að ljúka umsóknarferlinu á netinu án þess að stofna reikning. Með því að stofna reikning getur þú hins vegar auðveldlega sótt um önnur störf hjá okkur, skoðað umsóknir þínar eða sett upp tilkynningar um störf í boði. Við eyðum reikningi þínum eftir ákveðinn tíma af óvirkni nema þú veljir að halda honum. Áður en þú eyðir reikningnum þínum munum við hafa samband við þig til að staðfesta hvort þú viljir að við varðveitum reikningsupplýsingar þínar. Þú getur einnig eytt reikningi þínum hvenær sem er með því að nota virknina „Eyða upplýsingunum mínum“ á reikningi þínum.
Athuganir á bakgrunni og meðmælum
Það getur verið hluti af ráðningarferlinu að við athugum meðmæli fyrir umsækjendur sem komast á seinni stig ferlisins. Það felur í sér að hafa samband við einstaklinga sem þú hefur tilgreint sem faglega meðmælendur til að fá endurgjöf um fyrri störf þín, frammistöðu og hegðun. Við notumst við verkvang þriðja aðila í þessu ferli. Þegar þú gefur upp meðmælendur hefur verkvangurinn samband við meðmælendur þína fyrir okkar hönd og safnar saman svörum þeirra. Við vinnum með persónuupplýsingar sem eiga við um starfsferil þinn og meðmælendur, þar á meðal samskiptaupplýsingar og endurgjöf frá meðmælendum. Upplýsingar um meðmæli eru aðeins geymdar eins lengi og þarf til að taka ákvöðrun um ráðningar. Þegar ákvörðun hefur verið tekin er upplýsingum um meðmælendur eytt í samræmi við varðveislustefnu okkar sem tilgreind er í hluta (N).
Í ráðningarferli okkar þurfum við mögulega að sannreyna auðkenni þitt með því að biðja þig um að senda afrit af gildum persónuskilríkjum. Ef þú ert yngri en 18 ára kunnum við einnig að spyrja um afrit af fæðingarvottorði þínu ásamt samþykki frá forráðamönnum. Þegar við ráðum í ákveðnar stöður framkvæmum við mögulega frekari athuganir á bakgrunni varðandi persónuleg fjármál þín til að ganga úr skugga um að engar fjárhagsaðstæður séu til staðar (eins og vanskil eða skuldir) sem kynnu að hafa neikvæð áhrif á getu þína til að sinna starfi þínu í samræmi við settar kröfur og væntingar. Við munum ávallt upplýsa þig áður en við framkvæmum slíkar bakgrunnsathuganir. Afritum af skilríkjum þínum, fæðingarvottorði og upplýsingum um persónuleg fjármál þín verður eytt eftir að ráðningarferlinu lýkur.
Umsækjendahópur okkar
Við höldum utan um hóp af einstaklingum sem hefur áhuga á að vinna fyrir okkur. Ef þú samþykkir það munum við bæta þér við umsækjendahóp okkar. Þetta gefur okkur áframhaldandi aðgang að gögnum þínum, sem og gerir okkur kleift að deila gögnum þínum með öðrum mannauðsdeildum innan Husqvarna Group til að finna viðeigandi stöðu fyrir þig. Samkvæmt þessu samþykki munum við geyma upplýsingarnar þínar í eitt ár til viðbótar að hámarki. Ef við höfum samband við þig á þessu tímabili varðandi tiltekna lausa stöðu og með það í huga að koma á ráðningarsambandi við þig, mun þessi geymslutími framlengjast um sex mánuði til viðbótar. Að þeim tíma loknum munum við biðja um samþykki þitt á nýjan leik. Þú getur dregið samþykki fyrir framtíðinni þitt til baka hvenær sem er, með því að hafa samband við okkur í gegnum [email protected]. Viljir þú draga samþykki þitt til baka munu umsóknargögn þín ekki lengur koma til greina fyrir aðrar opnar stöður og umsóknargögnum þínum verður eytt.
Varðveisla gagna
Við munum eyða umsóknargögnum þínum fjórum mánuðum eftir að umsóknarferlinu lýkur, nema að við höfum gert ráðningarsamning við þig eða þú hafir samþykkt að vera í umsækjendahópi okkar.
(U) Ósjálfráða einstaklingar
Samantekt – ósjálfráða einstaklingar
Vefsvæði okkar eru ekki ætluð ósjálfráða einstaklingum og við öflum ekki viljandi persónuupplýsinga frá ósjálfráða einstaklingum.
Vefsvæði okkar eru ekki ætluð ósjálfráða einstaklingum og við öflum ekki viljandi persónuupplýsinga frá ósjálfráða einstaklingum.
(V) Samfélagsmiðlar og aðrir verkvangar þriðju aðila
Samantekt – samfélagsmiðlar og aðrir verkvangar þriðju aðila
Við vinnum með persónuupplýsingar í tengslum við aðdáendasíður á samfélagsmiðlum og öðrum verkvöngum þriðju aðila, til að greina vefsvæði og til að beina auglýsingaherferðum á ákveðna markhópa.
Hnappar á samfélagsmiðlum
Við notum hnappa á samfélagsmiðlum fyrir Facebook, X (áður þekkt sem Twitter), Instagram, Pinterest, YouTube, LinkedIn og Xing á okkar vefsvæðum. Hnappar á samfélagsmiðlum eru ekki samþættir sem íbætur í gegnum iFrame, en eru aðeins tenglar fyrir kynningarsíðu fyrirtækis okkar („aðdáendasíðu“) á viðkomandi verkvangi samfélagsmiðils. Engar persónuupplýsingar eru sendar til slíkra samfélagsmiðlaveita þegar smellt er á hnapp á samfélagsmiðli.
Aðdáendasíður
Við höldum úti aðdáendasíðum á samfélagsmiðlum og öðrum verkvöngum þriðju aðila til að markaðssetja og kynna vörur okkar og þjónustu. Þegar við höldum úti aðdáendasíðu á samfélagsmiðlum eða öðrum verkvöngum þriðju aðila, erum við ábyrgðaraðili ásamt veituaðila verkvangsins. Við starfrækjum aðdáendasíður í samstarfi við Meta, Pinterest, X, YouTube, LinkedIn og Xing (þar á meðal Kununu). Við mælum með að þú skoðir persónuverndartilkynningu allra slíkra fyrirtækja varðandi þá úrvinnslu sem þau framkvæma og samskiptaupplýsingar fyrir slík fyrirtæki.
Við munum vinna með persónuupplýsingar bæði skráðra og óskráðra gesta á aðdáendasíðum okkar.
Skráðir gestir: Við vinnum með upplýsingar í tengslum við vefsvæði okkar (eins og auðkenningu notenda), persónulegar upplýsingar og samskiptaupplýsingar (t.d. upplýsingar um sameiginlega prófíla). Við vinnum einnig með persónuupplýsingar sem verða til með deilingu á efni okkar, skilaboðum og samskiptum. Við munum einnig mögulega vinna með ákveðna flokka persónuupplýsinga, hafi notandinn deilt slíkum persónuupplýsingum.
Skráðir og óskráðir gestir: Við vinnum með nafnlausar upplýsingar á borð við tölfræðigögn og innsæi í samskipti gesta okkar við efnið á aðdáendasíðu okkar (virkni á síðu, skoðanir á síðum, upplýsingar um „læk“, drægni, almennar lýðfræðilegar upplýsingar, staðsetning og áhugatengdar upplýsingar um aldur, kyn, land, borg, tungumál), mat á árangri auglýsinga okkar og aðra greiningu. Við getum ekki skeytt nafnlausum upplýsingum við samsvarandi eiginleika (t.d. upplýsingar um nafn) og því er ekki mögulegt fyrir okkur að auðkenna einstaka gesti sem eru nafnlausir.
Aðdáendasíða eða önnur viðvera fyrirtækis á verkvöngum þriðju aðila er einungis ein af fjölmörgum leiðum til að hafa samband við okkur eða fá upplýsingar frá okkur. Einnig er hægt að komast í upplýsingarnar sem eru í boði á aðdáendasíðum okkar og viðveru fyrirtækisins á okkar vefsvæðum.
Greining og markhópur vefsvæða
Við notum mögulega þjónustu þriðja aðila þegar þú heimsækir vefsvæði okkar eða forrit (þar á meðal Google Analytics og Clarity). Við gerum þetta til að mæla hvernig vefsvæði okkar og þjónusta eru notuð til að skilja betur atferli notenda, til að besta vefsvæðin og bæta á endanum heildarupplifun þína á netinu (kallað greining vefsvæða).
Til að efla enn frekar greiningarhæfni vefsvæða kunnum við einnig að nota Google Signals. Hafir þú samþykkt að Google fylgist með þér á mismunandi tækjum, getur Google séð hvernig þú hefur samskipti við efni okkar á tækjum þínum og mun deila slíku innsæi með okkur á uppsöfnuðu formi, sem þýðir að munum ekki geta auðkennt þig eða neina aðra einstaka notendur. Þessi gögn geta falið í sér upplýsingar eins og tímalengd heimsókna, skoðaðar síður og samskipti við vefsvæði okkar. Þetta hjálpar okkur að telja einstaka gesti á vefsvæðum, skilja hegðun notenda og bæta þjónustu okkar.
Við kunnum einnig að nota þjónustu þriðju aðila til að sýna þér auglýsingaskilaboð á vefsvæðum sem vinna með viðeigandi þjónustuveitum þriðju aðila (þar á meðal Google, Meta, LinkedIn, Bing/Microsoft Ads), til að ná til mögulegra viðskiptavina sem hafa annað hvort þegar haft samskipti við okkur eða hafa svipuð áhugamál og núverandi viðskiptavinir okkar, og að mæla áhrifamátt herferða okkar og auglýsinga.
Eins og útskýrt var nánar í vafrakökustefnum okkar (sjá hluta (P) hér að ofan), notum við mögulega vafrakökur á svæðum okkar til að gera samfélagsmiðlum og öðrum þjónustuveitum þriðju aðila kleift, hafir þú reikning hjá slíkum þjónustuveitum, að senda þér Husqvarna Group auglýsingar sem hæfa áhugasviði þínu. Í þessu augnmiði uppáleggjum við þjónustuveitunni, á grundvelli upplýsinga sem dílar þjónustuveitunnar eða sambærileg tækni hafa safnað, að búa til hóp notenda þeirrar þjónustu sem verður markhópur auglýsingaherferða okkar (stundum kallaðir sérsniðnir áheyrendahópar eða samsvörun viðskiptavina).
Þegar stofna á sérsniðna áheyrendahópa, erum við og viðkomandi þjónustuaðili sameiginlegir ábyrgðaraðilar. Við bendum á viðkomandi persónuverndaryfirlýsingar þeirra til að fá frekari upplýsingar um úrvinnslu þeirra á persónuupplýsingum.
Til að fá upplýsingar um notkun Google á persónuupplýsingum þínum, vinsamlegast sjáðu: Hvernig Google notar upplýsingar af vefsvæðum eða forritum sem nota þjónustu okkar (https://policies.google.com/technologies/partner-sites).
Hvað varðar Meta Ireland, höfum viðgert viðauka fyrir Meta sem ábyrgðaraðila til að skera úr um viðkomandi ábyrgð aðila. Við berum ábyrgð á að veita þær upplýsingar sem kveðið er á um hér, og Meta Ireland ber ábyrgð á að virkja réttindi skráðra aðila samkvæmt greinum 15-20 í almennu persónuverndarreglugerðinni eða jafngildum ákvæðum annarra laga um gagnavernd með tilliti til persónuupplýsinga sem geymdar eru af Meta Ireland eftir sameiginlega úrvinnslu.
Þú getur einnig fundið viðeigandi samskiptaupplýsingar og frekari upplýsingar um hvernig Meta Ireland vinnur með persónuupplýsingar, þar á meðal lagalegur grunnur og leiðir til að beita réttindum þínum gagnvart Meta Ireland í gagnastefnu Meta Ireland á https://www.facebook.com/about/privacy.
Meta notar einnig mögulega upplýsingar um sérsniðna áheyrendahópa til að búa til tvífaraáheyrendur sem eru notendur Facebook eða Instagram með svipuð áhugamál eða prófíla og sérsniðnu áheyrendurnir okkar, í þeim tilgangi að senda auglýsingar á þessa áheyrendur. Í allri slíkri úrvinnslu er Meta ábyrgðaraðili gagna og persónuverndartilkynning þess á við um þessa úrvinnslu.
Þú getur skoðað auglýsingastillingar þínar og uppfært kjörstillingar þínar hjá viðkomandi þjónustuveitu hvenær sem er.
(W) Upplýsingar um ábyrgðaraðila
Samantekt – upplýsingar um ábyrgðaraðila
Nokkrir Husqvarna Group lögaðilar eru ábyrgðaraðilar samkvæmt þessari persónuverndartilkynningu, en þeir hafa mismunandi samskiptaupplýsingar. Sjá má viðkomandi ábyrgðaraðila og viðeigandi samskiptaupplýsingar þeirra hér að neðan.
Samkvæmt þessari tilkynningu eru viðkomandi ábyrgðaraðilar:
| Land | Lögaðili sem er ábyrgðaraðili | Samskiptaupplýsingar |
| Öll lönd | Husqvarna AB (publ.) | Drottninggatan 2, SE-561 82 Huskvarna, Svíþjóð |
| Austurríki | Husqvarna Austria GmbH | Industriezeile 36, AT-4010 Linz |
| Belgía | Husqvarna Belgium SA | Avenue des Artisans 50, ZI no 2, BE-7822 Ath |
| Búlgaría | Construction Tools EOOD | 100 Tutrakan blvd, 7000 Ruse |
| Búlgaría | Diamond Tool Supply BG EOOD | 159 Dondukov Blvd., floor 7, BG-1527 Sofia |
| Tékkland | Husqvarna Cesko s.r.o. | Türkova 2319/5b, CZ-14900 Praha 4 - Chodov |
| Tékkland | Husqvarna Manufacturing CZ s.r.o. | Jesenicka e.p. 146, CZ-79326 VRBNO POD PRADEDEM |
| Tékkland | SILESMONT, s.r.o. | Konská 742, 739 61 Trinec |
| Tékkland | STEELTECH, CZ s.r.o. | Prumyslová 700, CZ-73961 Trinec |
| Danmörk | Husqvarna Danmark A/S | Lejrvej 19, st, DK-3500 Værløse |
| Eistland | Husqvarna Eesti Osaühing | Valdeku 132, EE-11216 Tallinn |
| Finnland | Oy Husqvarna Ab | Juurakkotie 5B2, FI-01510 Vantaa |
| Frakkland | Husqvarna France S.A.S. | 9-11 Allée des Pierres Mayettes, FR-92635 Gennevilliers, Gennevilliers cedex |
| Frakkland | Husqvarna Construction Products France S.A.S. | 7, rue des Arches - CS 33402, FR-41034 Blois Cedex |
| Þýskaland | GARDENA GmbH | Hans-Lorenser-Straße 40, 89079 Ulm |
| Þýskaland | GARDENA Deutschland GmbH | Hans-Lorenser-Straße 40, 89079 Ulm |
| Þýskaland | GARDENA Manufacturing GmbH | Hans-Lorenser-Straße 40, 89079 Ulm |
| Þýskaland | Husqvarna Deutschland GmbH | Hans-Lorenser-Straße 40, 89079 Ulm |
| Þýskaland | Husqvarna Store GmbH | Friedrich-List-Straße 7, 89250 Senden |
| Grikkland | Husqvarna Greece SA | Industrial Area of Inofyta, 54th km Athens-Lamia, GR-32011 Inofyta, Beotia |
| Ungverjaland | Husqvarna Hungary Ltd. | Ezred u. 1-3, HU-1044 Budapest |
| Írland | Husqvarna Finance International Limited | 8th Floor, Block E, Iveagh Court, Harcourt Road, Dublin 2 |
| Írland | Husqvarna Finance Ireland Limited | 9th Floor, Block E, Iveagh Court, Harcourt Road, Dublin 2 |
| Ítalía | Husqvarna Italia S.p.A. | Via Santa Vecchia, 15, IT-23868 Valmadrera |
| Lettland | SIA Husqvarna Latvija | Ulbrokas str. 19A, LV-1021 LV-1021 |
| Litháen | UAB Husqvarna Lietuva | Ateities pl. 77c, LT-52104 Kaunas |
| Holland | Husqvarna Nederland B.V. | Jool Hulstraat 20-22, 1327 HA Almere |
| Noregur | Husqvarna Norge AS | Troeskenveien 36, NO-1708 Sarpsborg |
| Pólland | Husqvarna Poland Sp. z o.o. | ul. Burakowska 14, PL-01-066 Warszawa |
| Portúgal | Husqvarna Portugal, S.A. | Edificio Diamant Boart - Lagoa - Albarraque, 2635-595 Rio de Mouro |
| Slóvakía | Husqvarna Slovensko s.r.o. | Revolucna 573, 031 05 Liptovsky Mikulas |
| Spánn | Husqvarna España S.A. | Calle de Rivas, no 10, Vicalvaro district, ES-28052 Madrid |
| Svíþjóð | Husqvarna AB (publ) | Drottninggatan 2, SE-561 82 Huskvarna |
| Svíþjóð | Husqvarna Commercial Solutions AB | Drottninggatan 2, SE-561 82 Huskvarna |
| Svíþjóð | Husqvarna Stockholm AB | Herrestavägen 15, SE-177 38 Järfälla |
| Svíþjóð | HTC Sweden AB | Klevvägen 7, SE-614 92 Söderköping |
| Sviss | Husqvarna Schweiz AG | Industriestrasse 10, CH-5506 Mägenwil |
| Bretland | Husqvarna UK Ltd. | Preston Road, DL5 6UP NEWTON AYCLIFFE, Durham |
Einnig getur þú haft samband við okkur á https://privacyportal.husqvarnagroup.com. Hafir þú einhverjar spurningar er tengjast þessari persónuverndartilkynningu getur þú einnig haft samband við okkur á [email protected].
Hægt er að hafa samband við gagnaverndarfulltrúa okkar með samskiptaupplýsingunum hér að ofan en einnig er hægt að hafa samband við hann með því að senda tölvupóst á [email protected].
VIÐAUKI 1 – ÁKVÆÐI SEM EIGA SÉRSTAKLEGA VIÐ UM ÁKVEÐIN RÍKI
Samantekt – ákvæði sem eiga sérstaklega við um ákveðin ríki
Í þessum viðauka má finna ákvæði sem eiga sérstaklega við um ákveðin lönd. Athugaðu að ákvæðin í þessum viðauka eiga einvörðungu við í tilgreindu ríki.
(1) Þýskaland
(R) Bein markaðssetning
Tvöföld skráning í áskrift að fréttabréfi
Biðjir þú sérstaklega um það munum við senda þér fréttabréf okkar sem fjallar um þau viðfangsefni sem þú hefur valið, sem og upplýsingar um fyrirtæki okkar. Vinsamlegast athugaðu að afhending getur aðeins átt sér stað eftir að þú hefur sérstaklega staðfest áskrift þína aftur á meðan á tvöfaldri skráningu í áskrift stendur.
Þær persónuupplýsingar sem aflað er við skráningu fyrir fréttabréfi eru eingöngu notaðar til að senda og sérsníða hugbúnaðinn (t.d. til að ávarpa þig með nafni). Þú getur afturkallað samþykki þitt fyrir geymslu persónuupplýsinga sem þú hefur gefið okkur í þeim tilgangi að fá fréttabréfið hvenær sem er og gildir það þá framvegis eftir það. Þú getur notað tengla sem eru í hverju fréttabréfi til að afturkalla samþykki þitt en þú getur líka haft beint samband við okkur svo við getum útfært afturköllun þína. Finna má upplýsingar um samþykkið sem okkur var veitt í tölvupóstinum um tvöfalda skráningu fyrir áskrift.
(U) Ósjálfráða einstaklingar
Vefsvæði okkar eru ekki ætluð ósjálfráða einstaklingum og við öflum ekki viljandi persónuupplýsinga frá ósjálfráða einstaklingum (nema umsækjendum). Einstaklingar yngri en 16 ára mega aðeins senda okkur persónuupplýsingar ef foreldri eða forráðamaður hefur gefið þeim samþykki sitt eða fallist á samþykki hins ósjálfráða einstaklings. Í samræmi við 8. grein, málsgrein 2 í almennu persónuverndarreglugerðinni verður að afhenda okkur samskiptaupplýsingar foreldris eða forráðamanns svo við getum sannreynt samþykkið eða leyfið frá foreldri eða forráðamanni. Unnið verður svo með þessar upplýsingar og upplýsingar um ósjálfráða einstaklinginn í samræmi við þessa persónuverndartilkynningu. Komumst við á snoðir um að ósjálfráða einstaklingur yngri en 16 ára hafi sent okkur persónuupplýsingar án samþykkis frá foreldri eða forráðamanni, munum við tafarlaust eyða þeim upplýsingum.
(W) Upplýsingar um ábyrgðaraðila
Hægt er að hafa samband við gagnaverndarfulltrúa okkar með samskiptaupplýsingunum hér að ofan en einnig er hægt að hafa samband við hann með því að senda tölvupóst á [email protected].
(2) Austurríki
(R) Bein markaðssetning
Tvöföld skráning í áskrift að fréttabréfi
Biðjir þú sérstaklega um það munum við senda þér fréttabréf okkar sem fjallar um þau viðfangsefni sem þú hefur valið, sem og upplýsingar um fyrirtæki okkar. Vinsamlegast athugaðu að afhending getur aðeins átt sér stað eftir að þú hefur sérstaklega staðfest áskrift þína aftur á meðan á tvöfaldri skráningu í áskrift stendur.
Þær persónuupplýsingar sem aflað er við skráningu fyrir fréttabréfi eru eingöngu notaðar til að senda og sérsníða hugbúnaðinn (t.d. til að ávarpa þig með nafni). Þú getur afturkallað samþykki þitt fyrir geymslu persónuupplýsinga sem þú hefur gefið okkur í þeim tilgangi að fá fréttabréfið hvenær sem er og gildir það þá framvegis eftir það. Þú getur notað tengla sem eru í hverju fréttabréfi til að afturkalla samþykki þitt en þú getur líka haft beint samband við okkur svo við getum útfært afturköllun þína. Finna má upplýsingar um samþykkið sem okkur var veitt í tölvupóstinum um tvöfalda skráningu fyrir áskrift.
(U) Ósjálfráða einstaklingar
Vefsvæði okkar eru ekki ætluð ósjálfráða einstaklingum og við öflum ekki viljandi persónuupplýsinga frá ósjálfráða einstaklingum (nema umsækjendum). Einstaklingar yngri en 16 ára mega aðeins senda okkur persónuupplýsingar ef foreldri eða forráðamaður hefur gefið þeim samþykki sitt eða fallist á samþykki hins ósjálfráða einstaklings. Í samræmi við 8. grein, málsgrein 2 í almennu persónuverndarreglugerðinni verður að afhenda okkur samskiptaupplýsingar foreldris eða forráðamanns svo við getum sannreynt samþykkið eða leyfið frá foreldri eða forráðamanni. Unnið verður svo með þessar upplýsingar og upplýsingar um ósjálfráða einstaklinginn í samræmi við þessa persónuverndartilkynningu. Komumst við á snoðir um að ósjálfráða einstaklingur yngri en 16 ára hafi sent okkur persónuupplýsingar án samþykkis frá foreldri eða forráðamanni, munum við tafarlaust eyða þeim upplýsingum.
(3) Bandaríkin
Engin gagnaverndarlöggjöf hefur verið tekin upp í Bandaríkjunum. Þess í stað hafa ýmis ríki tekið upp sína eigin gagnaverndarlöggjöf („ríkisstaðlar“). Husqvarna uppfyllir alla ríkisstaðla sem eru í gildi. Ef þú hefur búsetu í Bandaríkjunum eða ert með aðgang að vefsvæði okkar í Bandaríkjunum, munum við vinna með persónuupplýsingar þínar í samræmi við bandarísku persónuverndartilkynninguna okkar (hægt að nálgast hér: Persónuverndartilkynning á husqvarna.com | Husqvarna US).
VIÐAUKI 2 - ÁKVÆÐI SEM EIGA SÉRSTAKLEGA VIÐ UM ÁKVEÐIN FORRIT, ÞJÓNUSTU OG VÖRUR
Samantekt – ákvæði sem eiga sérstaklega við um ákveðin forrit, þjónustu og vörur
Í þessum viðauka má finna ákvæði sem eiga sérstaklega við um ákveðin forrit, þjónustu eða vöru. Athugaðu að ákvæðin í þessum viðauka eiga aðeins við í tengslum við tilgreint forrit, þjónustu eða vöru.
(1) Husqvarna Group-auðkenni
Þegar þú skráir þig fyrir notkun á einhverju af vefsvæðum okkar, forritum, vörum eða þjónustu, stofnum við Husqvarna Group-auðkenni svo þú getir stjórnað reikningi þínum og virkjað aðgang að tengdri þjónustu innan Husqvarna Group. Husqvarna Group-auðkennið þitt er tengt við skráningarupplýsingar þínar (eins og nafn, netfang og innskráningarauðkenni þín) og hjálpar okkur að skapa hnökralausa upplifun í allri okkar þjónustu. Ekki þarf skráningu fyrir öll okkar vefsvæði, forrit, vörur eða þjónustu (og því Husqvarna Group-auðkenni). Í sumum tilvikum er Husqvarna Group-auðkenni valfrjálst og fer eftir því hvernig þú kýst að hafa samskipti við þjónustu okkar.
Hægt er að nota Husqvarna Group-auðkennið þitt til að komast í ýmsa tengda þjónustu innan Husqvarna Group.
Þú getur beðið um að persónuupplýsingum þínum sé eytt fyrir tiltekna þjónustu. Í slíkum tilvikum munum við eyða viðeigandi persónuupplýsingum úr kerfum okkar. Hins vegar verður Husqvarna Group-auðkennið þitt áfram virkt.
Ef þú þarft ekki lengur á Husqvarna Group-auðkenninu þínu að halda fyrir aðra þjónustu, munum við gefa þér leiðbeiningar um hvernig á að eyða því varanlega. Einnig getur þú eytt Husqvarna Group-auðkenninu sjálf(ur) með því að nota þennan tengil: https://app.scp.dss.husqvarnagroup.net/login
(2) Úrvinnsla persónuupplýsinga innan Automower® Appa, vara og kerfis
Hver og hvers vegna?
Þegar þú skráir þig fyrir og notar Husqvarna Automower® Öpp, og Husqvarna AB (útg.) („Husqvarna“ eða „við“), er ábyrgðaraðilinn munum við vinna með persónuupplýsingar þínar. Við vinnum með persónuupplýsingar þínar til að:
- Veita þér Automower® Öpp. Lagalegi grunnurinn er sá að úrvinnslan er nauðsynleg svo við getum innt af hendi þær skyldur sem samningurinn sem þú hefur gert við okkur, eða til að við getum gripið til ráðstafana áður en þú gerir samning við okkur.
- Þróa enn frekar og bæta vörur okkar og þjónustu. Þetta felur í sér greiningareiginleika eins og rakningu notendahegðunar til að fínstilla Öpp. Lagagrundvöllurinn er samþykki þitt.
- Virkja tengingu Automower® vara við Automower® kerfið (Internet of Things); nýta samþættingu við samstarfsaðila (til dæmis snjallaðstoð, þar á meðal raddstýrð tæki); nota tengiverkvanga til að tengja Automower® við tæki frá þriðju aðilum, forrit og þjónustu; og byggja upp þína eigin samþættingu snjallheimilis. Lagalegi grunnurinn er að úrvinnslan er nauðsynleg svo við getum uppfyllt þær skyldur sem fylgja samningnum sem þú hefur gert við okkur.
- Veita þér viðeigandi upplýsingar í tengslum við Automower® og Automower® kerfisupplifun. Lagalegi grunnurinn er lögmætir hagsmunir okkar við að halda þér upplýstum/upplýstri um vörur þínar, þjónustu og eiginleika.
- Veita þér stuðning og úrræðaleit varðandi Automower® vörur, kerfi og Öpp. Lagalegi grunnurinn er að úrvinnslan er nauðsynleg svo við getum uppfyllt þær skyldur sem fylgja samningnum sem þú hefur gert við okkur.
Hafir þú gefið okkur samþykki þitt (en þá er lagalegi grunnurinn samþykki þitt), vinnum við mögulega einnig með persónuupplýsingar þínar í eftirfarandi tilgangi:
- Senda þér sérsniðnar auglýsingar og fréttabréf um vörur okkar og þjónustu.
- Senda þér þjónustukannanir og greina svör þín eins og greint er nánar frá í slíkum samskiptum.
Þegar þú staðfestir Automower® App reikninginn þinn, getum við einnig deilt nafni þínu, netfangi og landi með auglýsingaaðilum okkar, ef þú hefur samþykkt notkun markaðsvafrakaka á vefsíðum okkar. Lagagrundvöllurinn er samþykki þitt. Við deilum gögnunum með þessum samstarfsaðilum til þess að: (i) mæla árangur auglýsinga okkar; og (ii) gera viðkomandi samstarfsaðila kleift að bera kennsl á og birta auglýsingar okkar fyrir notendum sem hafa svipaða hegðun og þeir sem smella á auglýsingar okkar og skrá sig í kjölfarið í þjónustu okkar. Öll gögn sem við deilum eru gerðnefnd og auglýsingaaðilinn getur ekki tengt þau við þig, nema þú hafir þegar veitt þeim þessi gögn í tengslum við samband þitt við þá, ef slíkt er til staðar.
Unnið verður með upplýsingar þínar eins lengi og Husqvarna þarf til að geta uppfyllt ofangreindar skyldur, en undir engum kringumstæðum lengur en lög kveða á um.
Hvaða persónuupplýsingar vinnum við með?
Við kunnum að vinna með eftirfarandi persónuupplýsingar:
- persónulegar upplýsingar: skírnar- og föðurnafn, þjóðerni, æskileg tungumál;
- samskiptaupplýsingar: netfang;
- reikningsupplýsingar: aldur reiknings, aðgangsorð, reikningsnúmer;
- GPS-staðsetningu sláttuvélarinnar;
- önnur gögn tengd Automower® uppsetningu þinni: nafn sláttuvélar, pörunarheiti, aðgerðir sem gangsettar eru með samþættingu við samstarfsaðila, svæðis- og garðheiti; og
- upplýsingar um tæki (t.d. gerð, stýrikerfi, útgáfa Appsins).
Samþætting við samstarfsaðila
Til að gefa betri upplifun virkjum við samþættingu við samhæfð tæki frá helstu framleiðendum í Automower® kerfið okkar. Við erum einnig að samþætta tækni okkar við leiðandi verkvanga fyrir snjallheimili. Til að nota þessi tæki/verkvanga, verður þú að tengja notandareikning þinn hjá viðkomandi samstarfsaðila við notandareikninginn fyrir Automower® App og samþykkja notkun á samhæfðu tæki og tenginguna við verkvanginn. Til að tryggja hnökralausa virkni, og með þínu samþykki, eru sumar persónuupplýsingar sem tæki samstarfsaðila afla geymdar í kerfum okkar og stöðuupplýsingar um tæki þín eru áframsend í snjallheimiliskerfin. Finna má frekari upplýsingar um samþættingu okkar við samstarfsaðila á https://www.husqvarna.com/uk/learn-and-discover/smart-home-integration/.
Notkun á staðsetningarupplýsingum
Ákveðin þjónusta okkar virkar aðeins ef við getum fundið staðsetningu sláttuvélarinnar þinnar. Þegar þú deilir staðsetningu sláttuvélar þinnar með okkur, eru upplýsingarnar geymdar sem hluti af prófílnum þínum og kunna að vera sendar til þriðju aðila á nafnlausu formi í þeim tilgangi að veita viðkomandi þjónustu (t.d. að leggja sláttuvélinni þegar það er úrhellisrigning).
Eftirlit og stjórnun sláttuvélarinnar í Appinu (t.d. kort í beinni, staðsetningar í beinni o.s.frv.) virkar aðeins ef sláttuvélin sendir okkur landfræðileg hnit sín. Upplýsingarnar eru geymdar sem hluti af prófílnum þínum og notaðar til að veita þjónustuna, til að finna lausnir við vandamálum og til frekari þróunar á tækninni. Öppin kunna að nota þriðja aðila þjónustuaðila til að birta kortagögn (fyrir Automower® Connect er Google Maps notað).
Google Firebase
Við notum Google Firebase, þjónustu frá Google Ireland Limited, til að greina notkun á forriti og tryggja og bæta afköst. Þjónusta Firebase hjálpar okkur að skilja samskipti notenda, fylgjast með stöðugleika forritsins og tryggja og fínstilla virkni.
Eins og stendur notum við:
- Google Analytics for Firebase – fylgist með hegðun notenda og afköstum forrits.
- Firebase Crashlytics – gerir hrunskýrslur fyrir bilanaleit, nauðsynlegt til að tryggja virkni Appsins.
- Firebase Performance Monitoring – fylgist með afköstum forrits á netkerfum og tækjum.
Firebase vinnur með upplýsingar fyrir okkar hönd samkvæmt samningi um upplýsingaúrvinnslu. Upplýsingarnar kunna að fela í sér nafnlaus auðkenni, tækjaupplýsingar og samskiptaskrár. Hægt er að geyma upplýsingar í skýjaþjónustu Google, einnig utan ESB/EES. Sending upplýsinga heyrir undir gagnaverndarramma og stöðluð samningsákvæði ESB og Bandaríkjanna. Frekari upplýsingar má nálgast á Friðhelgi og öryggi í Firebase.
Frekari upplýsingar
Við munum ávallt nota persónuupplýsingar þínar í samræmi við persónuverndartilkynningu okkar. Finna má frekari upplýsingar um hvernig við vinnum með upplýsingarnar þínar, hverjum við deilum þeim með, hvaða réttindi þú hefur og nánari samskiptaupplýsingar okkar í persónuverndartilkynningunni.
(3) Úrvinnsla persónuupplýsinga í sjónræna aukabúnaðinum fyrir Automower®
Þegar þú ert að nota sjónræna aukabúnaðinn fyrir Husqvarna Automower® Nera, mun Husqvarna AB (útg.) („Husqvarna“ eða„við“) vinna með persónuupplýsingar hvers þess einstaklings sem birtist í sjónsviði hans til að:
- Beita hlutagreiningu okkar og sjónrænni stýringu svo sláttuvélin geti forðast hluti og hægt sé að meta hraða og stefnu á meðan á slætti stendur. Lagalegi grunnurinn er lögmætir hagsmunir okkar við að gera sláttuvélinni kleift að aka um allan grasblettinn án þess að rekast á eitthvað eða lenda í öðrum skakkaföllum.
- Upplýsa notandann um að það þurfi að fjarlægja hluti sem eru fyrir sláttuvélinni á meðan hún er að slá. Lagalegi grunnurinn er lögmætir hagsmunir okkar við að slá alla grasflötina og skila notendum okkar góðri upplifun.
Hvaða persónuupplýsingar vinnum við með?
Við vinnum mögulega með eftirfarandi persónuupplýsingar:
- Kort af grasflöt þinni;
- Myndrænar upplýsingar; við vinnum mögulega með myndir af einstaklingum á, eða nálægt, sláttusvæðinu. Þessar myndir verða greindar og þeim eytt strax í sláttuvélinni. Við munum ekki auðkenna neina einstaklinga í gegnum sjónræna aukabúnaðinn;
Frekari upplýsingar
Ákvörðunin um hvort hlutur sé manneskja eða ekki er sjálfvirk. Þetta hefur engin áhrif á þær upplýsingar sem er að finna í hlutanum „(I) Persónugreining”. Þessi sjálfvirka ákvörðun er ekki persónugreining og mun ekki hafa í för með sér nein lagaleg áhrif fyrir einstaklinginn. Við munum eyða öllum myndum í sláttuvélinni strax og enginn getur séð upprunalegu myndina í skrám sláttuvélarinnar.
(4) Úrvinnsla persónuupplýsinga í GARDENA Bluetooth® forritinu
Hver og hvers vegna?
Þegar þú notar GARDENA Bluetooth® forritið og GARDENA GmbH („GARDENA“ eða „við“), er ábyrgðaraðilinn, munum við vinna með persónuupplýsingar þínar. Við vinnum með upplýsingar þínar til að:
- Veita þér GARDENA Bluetooth® forritið og virkni þess (t.d. uppsetningu tækis, tímaáætlun, pásu vegna regns, breytingar á PIN-númeri sláttuvélar). Lagalegi grunnurinn er að úrvinnslan er nauðsynleg svo hægt sé að uppfylla samninginn sem þú hefur gert við okkur, eða grípa til ráðstafana áður en þú gerir samning við okkur.
- Þróa og bæta vörur okkar og þjónustu enn frekar (þar á meðal bilanaleit og hámörkun afkasta forritsins). Lagalegi grunnurinn er samþykki þitt fyrir þróun og úrbótum á vörum okkar og þjónustu, þar á meðal bilanaleit og hámörkun afkasta forritsins. Þar á meðal er greining á eiginleikum, eins og vöktun á hegðun notenda til að hámarka forritið.
- Virkja endurgjöf og samskipti við forritið (ef þú velur að gefa endurgjöf). Lagalegi grunnurinn er lögmætir hagsmunir okkar við að meta og bæta þjónustu okkar.
Unnið verður með upplýsingar þínar eins og lengi og við þurfum þess til að við getum uppfyllt ofangreindar kröfur, en undir engum kringumstæðum lengur en lög kveða á um.
Hvaða persónuupplýsingar vinnum við með?
Við vinnum mögulega með eftirfarandi persónuupplýsingar þegar þú notar forritið:
- Upplýsingar um tæki (t.d. gerð, stýrikerfi, útgáfu forrits)
- Upplýsingar um notkun forrits (t.d. skoðaðar skjámyndir, tímalengd setu, samskipti)
- Upplýsingar um endurgjöf (t.d. netfang, gerð tækis, landsstillingar)
- Greiningar- og hrunskýrslur (ef slíkt er virkjað)
- Auðkenni fyrir auglýsingar (t.d. IDFA/GAID, ef slíkt er ekki afvirkjað)
Ef þú vilt nota GARDENA Bluetooth® forritið og virkni þess þarftu ekki að stofna notandareikning hjá GARDENA eða fyrirtækjahóp okkar, the Husqvarna Group (Husqvarna Group auðkenni).
Notkun á upplýsingum um staðsetningar
Við söfnum ekki né geymum upplýsingar um staðsetningar fyrir GARDENA Bluetooth® forritið. Þegar um er að ræða Android-tæki, getur þurft að nota staðsetningarleyfi svo hægt sé að virkja skimun með Bluetooth Low Energy (BLE) vegna krafna sem gilda um Android. Þetta leyfi er eingöngu notað til að staðsetja og tengja nálæg GARDENA-tæki og við höfum ekki aðgang að því né geymum við það.
Google Firebase
Við notum Google Firebase, þjónustu frá Google Ireland Limited, til að greina notkun forritsins og bæta afköst. Þjónusta Firebase hjálpar okkur að skilja samskipti notenda, fylgjast með stöðugleika forritsins og hámarka virkni.
Eins og stendur notum við:
- Google Analytics for Firebase – fylgist með hegðun notenda og afköstum forrits.
- Firebase Crashlytics – gerir hrunskýrslur fyrir bilanaleit.
- Firebase Performance Monitoring – fylgist með afköstum forrits á netkerfum og tækjum.
Firebase vinnur með upplýsingar fyrir okkar hönd samkvæmt samningi um upplýsingaúrvinnslu. Upplýsingarnar kunna að fela í sér nafnlaus auðkenni, tækjaupplýsingar og samskiptaskrár. IP-tölur eru gerðar nafnlausar áður en þær eru sendar. Hægt er að geyma upplýsingar í skýjaþjónustu Google, einnig utan ESB/EES. Sending upplýsinga heyrir undir gagnaverndarramma og stöðluð samningsákvæði ESB og Bandaríkjanna. Frekari upplýsingar má nálgast á Friðhelgi og öryggi í Firebase.
Frekari upplýsingar
Við munum ávallt nota persónuupplýsingar þínar í samræmi við persónuverndartilkynningu okkar. Hægt er að finna nánari upplýsingar um hvernig við vinnum með upplýsingarnar þínar, hverjum við deilum þeim með, hvaða réttindi þú hefur og frekari samskiptaupplýsingar í persónuverndartilkynningunni.
2026-04-13